Hola!!
Fyrsti skóladagurinn- sem þýðir vakna snemma!!
Vaknaði kl. 7:20 og það var ennþá dimmt!! Það var mjög skrítið
að vakna í dimmu hér!! Hah. En gerði mig klára og var til rétt
fyrir 8. Skólinn átti að byrja hálf 9 og Yuyi þurfti að far aða
gera e-ð svo við þurftum að leggja aðeins fyrr af stað. Því hún var
svo góð að keyra mig! Þegar við komum í skólann var allt lokað og
læst ennþá!! Haha en svo um kortér yfir 8 fórum við inn!! Og þá
komumst við að því að tímarnir byrjuðu ekki fyrr en 10:10 því þetta
var 1. dagurinn. Ég bara OHH!!! Heh en Pura og Lauren voru líka
komnar svo ég fór bara með þeim heim og svo um hálf 10 löbbuðum við
Lauren í skólann. Það tók alveg hálftíma og niður brekku!! Heh hef
líka labbað þetta upp!!
Þegar við komum í skólann var allt fullt af krökkum! Biðum
fyrir framan skrifstofu skólastjórans því við áttum að fara í Aula
de lace, sem er svona spænskutímar fyrir þá sem eru útlendingar!
Eigum að vera þar í mánuð!!
mig langar í bekk!!
Samt er kerfið þarna eins og áfangakerfi heima! Ég verð ekki í
bekk, er á náttúrufr. Braut og flakka á milli stofa og er ekki með
sömu krökkunum í tímunum! En þá kynnist maður bara fleirum.!
Reyndar fer ég náttúrlega eftir viku og við náðum btw. Ekki í AFS í
dag!!
En
að skólanum! Mér gekk bara ansi vel og skildi flest allt!!
Þetta
er svolítið fyndi system því skólinn er eiginlega alltaf búinn kl:
14:10 og það er hlið sem er lokað og læst og vörður sem stendur við
það og það er ekki opnað fyrr en 14:10! Þó að maður sé búinn
fyrr!!! Hah en ég fékk leyfi til að fara út því við vorum búin og
strætóinn minn kemur á milli 5 og 10 mín yfir annars þarf ég að
bíða til hálf!!
Þegar ég var nýkomin á strætóstöðina og sest niður keyrði
strætóinn FRAMHJÁ mér!!! AAAA ég var pirruð!! Það var búið að segja
mér að hinn strætóinn væri nr 664 og ég þyrfti að taka hann! En
fólkið sem var líka í skýlinu sagði mér að ég gæti líka tekið 660!
Hann kom örlitlu seinna og ég náði honum og komst heilu á höldnu
heim!!
Þegar heim var komið fengum við Yuyi okkur hádegismat! Fékk
kjúkkling og grænar baunir! Það var gott! Svo lærði ég. Það var nú
ekki mjög mikið. Við fengum líka bók að lesa og ég er með Mary
Poppins. Las 1. kaflann, glósaði svo fyrstu 2
blsJ
Annars var geggjað veður í dag og er enn!! Þannig að ég fór út
og las og var í sólbaði á pallinum. Þannig að ég er alveg komin með
e-n lit! Samt læt ég skína meira framan á mig svo ég er eins og
Homblest kex..kannski ekki svo slæm en samt! Því það eru bara
stólar til þess að sitja á og ef ég ætla að láta skína á bakið á
mér þarf ég að standa! Því ekki legst ég á flísarnar því þar eru
maurar og svona alls konar!
Var að koma inn
úr smá göngutúr um hverfið!! Labbaði um á
stuttermabolJ
æði!!
Skoðaði fleiri villur og girðingar!! Hha ég gleymdi alltaf að
segja að þeir eru sko með miða á girðingunum e-ð: Seguro og e-ð um
að það sé þjófavörn í húsinu og e-ð svaka!! Hah mér finnst þetta
bara fyndið!
En
ætla ekki að hafa þetta lengra í bili!
Hasta luego!
Halldís-